Karellen
news

Nýtt ár - 2024

05. 01. 2024

Gleðilegt nýtt ár kæru foreldrar og takk fyrir samstarfið á því gamla.

Hér á Lyngbjalla höfum við byrjað nýja árið á rólegu nótunum enda flestir afslappaðir og úthvíldir eftir hátíðarnar. Í vikunni fórum við í listsköpun og unnið þar við ýmis verkefni og farið í íþróttasalinn og notið þess ar hreyfa okkur. Auk þess unnum við með leir, sungum og lásum eða hlustuðum á sögur, sögðum frá (framsögn) auk ýmissa annara verkefna og svo má auðvitað ekki gleyma frjálsa leiknum.

Flestir hafa orðið varir við bleytuna sem hefur verið hérna hjá okkur upp á síðkastið. Við viljum endilega biðla til ykkar foreldra og forráðamanna að passa upp á að allur viðeigandi fatnaður sé örugglega í hólfum barnanna. Nauðsynlegur fatnaður eins og vettlingar, hlý peysa og húfa eða viðeigandi skófatnaður, svo eitthvað sé talið, þurfa að vera til staðar þegar við förum í vettvangserð og fyrir daglega útiveru. Einnig er gott að hafa í huga að veðrið á Íslandi getur breyst mjög fljótt. Þá er það sérstaklega mikilvægt þegar allra veðra er von að nóg sé af aukafötum í körfu barnsins. Þá er einnig mikilvægt að allur fatnaður sé mertur, sérstaklega vegna þess að á Lyngbjalla eru börnin að æfa sig í að klæða sig sjálf og þá vill það stundum verða þannig að fötin fari á flakk eða að blautu fötin rati ekki í rétt hólf.

© 2016 - 2024 Karellen