Karellen
news

Lyngbjalli: Föstudagspistill

01. 12. 2023

Það er mikið fjör á Lyngbjalla flesta daga en einnig tækifæri til rólegra stunda þar sem allir geta dundað sér í a.m.k. smástund.

Undanfarin ár hafa börn og starfsfólk leikskólans hist í íþróttasalnum í jólasöngstund alla morgna í desember fram að jólum.Árið í ár verður engin undantekning og nú sem endranær eru foreldrar og forráðamenn boðnir velkomnir og vera með.

Við minnum ykkur á að kynna ykkur dagskrá desember mánaðar tímanlega enda margt að gerast hér í leikskólanum á komandi vikum. Sérstaklega viljum við benda á foreldramorgunverðinn þar sem foreldrar og börn njóta þess að borða saman og eiga gæðastund í upphafi dags. Þann dag er matsalurinn opinn frá 7:30 – 9:30.


© 2016 - 2024 Karellen