Karellen
news

Dansandi dýr á Lyngbjalla og menningardagur

12. 04. 2024

Lífið gengur vel á Lyngbjalla. Börnin eru dugleg í leik og starfi og það er alltaf nóg að gera.

Hápunktar síðastliðinnar viku eru kannski helstir þegar börnin fylgdust spennt með þegar “nýji leikskólinn” kom og var hýfður á sinn stað. Þá var einnig menningardagur í dag, föstudag' en af því tilefni varu unnin verkefni sem því tengjast.

Á dögunum gerðu m við tilraun þar sem nokkur lítil plast dýr voru sett ofan á hátalara deildarinnar. Þá var tónlist sett í gang og dýrin tóku sig til og “dönsuðu”.Þetta vakti mikla kátínu og undrun hjá börnunum.


© 2016 - 2024 Karellen