Karellen
news

Listsköpun í snjó

21. 02. 2022

Börnin á Háabjalla hafa svo sannarlega nýtt sér snjóinn sem efnivið í listsköpun. Fyrir utan öll listaverkin sem verða til í útivist á hverjum degi hafa börnin líka farið út og málað snjóinn. Það er alltaf jafn skemmtilegt að breyta til og gera hlutina öðruvísi. Það voru allir mjög spenntir að sprauta lit úr flöskum og framkalla marglitar myndir í snjóinn. Svo breyttust þær þegar stigið var á snjóinn og hnoðaðir snjóboltar. Ekkert jafnast á við að sulla svolítið og leika sér með mismunandi efnivið – líka úti.

© 2016 - 2024 Karellen