Karellen
news

Gleðilegt ár

07. 01. 2022

Mikið er nú gott að koma aftur til vinnu eftir jólafrí. Allir eru svo glaðir og úthvíldir. Við höfum brallað ýmislegt þessa fyrstu viku ársins. Nýtt þema er hafið þar sem umfjöllunarefnið er landið/löndin okkar, bærinn okkar, himininn, hafið, störf og vistspor. Allt tengist þetta þegar vel er skoðað. Við ætlum að vinna í þessu öllu næstu þrjá mánuði.

Í vikunni fórum við líka út í rokið og kíktum á úfinn sjóinn, spreyttum okkur í LAL, þæfðum ull og margt fleira. Það er alltaf mikið að gera á Háabjalla – fyrir utan auðvitað allan frjálsa leikinn sem er undirstaða alls sem við lærum.

© 2016 - 2024 Karellen