Karellen
news

Svipmyndir frá Lágabjalla

01. 06. 2021

Jæja, enn ein vikan hafin og einnig nýr mánuður! Tíminn flýgur svo sannanlega!

Í gær var hópastarfið hjá okkur samkvæmt stundarskrá eins og aðra mánudaga.Fjörkálfarnir fóru í listasmiðju og Lukkutröllin í íþróttir til hans Badda og á meðan höfðu Snillingarnir okkar það rólegt inni á deild.

Eftir hópastarf og ávaxtabitann skiptum við börnunum upp í smærri hópa, 3-4 börn, þar sem þeim gefast tækifæri á að æfa sig í að deila með öðrum og ýmislegt annað sem viðkemur að vera í hóp.

Í dag vorum við í rólegum leik inni á deild og nærliggjandi svæðum. Þá fóru nokkur börn og hittu hann Lubba vin okkar og sungu fyrir hann um málhljóðin A og M.


© 2016 - 2024 Karellen