Karellen
news

Vikan á Lyngbjalla

12. 01. 2024

Þessi vika hefur liðið hratt enda líður tíminn hraðar þegar nóg er að gera, bæði í skipulögðu hópastarfi og frjálsum leik. Þrátt fyrir rok og rigningu, sérstaklega fyrri helming vikunar, hafa börnin notið útiverunnar. Reglulega í útiverunni heyrast hávær hróp þar sem rigningin, pollarnir og vindurinn eru dásömuð og gleðin skín úr andlitum barnanna þar sem þau hoppa og skoppa um í pollunm eða láta vindinn feykja sér til og frá.

Næstkomandi þriðjudag er skipulagsdagur hjá okkur en þann dag er leikskólinn lokaðar.Þá viljum við einnig minna á pabba og afadaginn á miðvikudag, en þá eru allir afar og pabbar velkomnir í leikskólan á milli klukkan 14:30 til 16:00.

© 2016 - 2024 Karellen