Karellen
news

Bleikur dagur og fleira frá Lyngbjalla

20. 10. 2023

Af okkur á Lyngbjalla er allt gott að frétta. Við höfum unnið með ýmislegt skemmtilegt þessa viku auk hefðbundinna verkefna í hópastarfi. Skráningar í heilsubók standa nú yfir og verkefni sem henni tengjast hafa skipað stórann sess í verkefnum vikunnar. Eins og kannski sést á einhverjum ljósmyndanna hér að neða var einbeitinginn mikil.

Þá má ekki gleyma bleika deginum sem var í dag en við slógum til og tókum hópmynd að því tilefni.

Í næstu viku, eða næstkomandi föstudag, er svo komið að bangsadegi en við höldum upp á hann og mætum með bangsa eða eitthvert mjúkt og gott tuskudýr.

© 2016 - 2024 Karellen