Karellen
news

Bangsadagur

27. 10. 2023

Í dag héldum við upp á alþjóðlegan bangsadag. Hann er haldinn hátíðlegur ár hvert, 27. október, á fæðingardegi Theodore Roosevelt, fyrrverandi bandaríkjaforseta. Margir komu með bangsa að heiman og hittum við hinar deildirnar ásamt böngsum í íþróttasal og sungum saman. Í lokin var tekin hópmynd af öllum á Lágabjalla.

© 2016 - 2024 Karellen