Sagan þegar Blær kemur til Suðurvalla
Það er morgun í Ástralíu. Blær vaknar og teygir loppurnar sínar. Síminn hringir og það er enginn annar en forseti Íslands að bjóða Blæ í heimsókn til Íslands. Forsetinn er að bjóða Blæ í heimsókn því börnum á Íslandi langar svo að læra að vera betri við hvort annað eins og þið eruð í Ástralíu.
Blæ finnst þetta frábær hugmynd, byrjar strax að pakka í töskuna sína. Hann leggur af stað á flugvöllinn og er mjög spenntur að leggja af stað í þetta langa ferðalag til Íslands.
Blær flýgur alla leið til Ísland í flugvél en... flugvélin getur ekki lent og allir verða að stökkva út með fallhlíf. Blær lendir mjög nálægt og næstum á nýja hrauninu rétt hjá Vogunum, þannig að félagar okkar í Björgunarsveitinni Skyggni hoppa til og bjarga honum. Þeir vilja huga vel að honum og koma honum beint til okkar á leikskólann Suðurvelli.
Krakkarnir á Suðurvöllum taka vel á móti Blæ. Blær fær knús, fallegar kveðjur og fullt af spaða fimmum við komuna. Blær lét Heiðu leikskólastjóra hafa töskuna sína, því hann kom með svolítið óvænt í henni handa öllum börnum og deildum leikskólans.
Nú erum við komin með Blæ til okkar og getum byrjað vinna með Vináttu verkefnið með Blæ í Blæstundum.
Öll börn á Suðurvöllum fengu afhentan lítinn Blæ bangsa merktan þeim til að hafa á leikskólanum. Að auki fengu allar deildir stóran Blæ bangsa.
* En Blær ætlar að hjálpa öllum börnum að verða vinir og félagar, einnig er hann sérfræðingur að hughreysta og hugga börn.vináttuverkefni barnaheilla.pdf
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af því þegar Blær kom í heimsókn til okkar með aðstoð Björgunarsveitinni Skyggni.



