Karellen


Foreldrafélag er starfandi við leikskólann Suðurvelli og eru félagar þess foreldrar og forráðamenn barna á leikskólanum. Stjórn foreldrafélagsins er hins vegar skipuð 5 foreldrum og 1 áheyrnarfulltrúa leikskólans.

Markmið foreldrafélagsins er að tryggja velferð barnanna sem best með því að efla tengsl og samvinnu foreldra og starfsfólks og efla tengsl milli foreldra.

Verkefni foreldrafélagsins eru margvísleg og hefur félagið boðið uppá ýmsar uppákomur s.s. jólaleikrit, skemmtiatriði á Suðurvalladaginn, myndatöku fyrir útskriftarbörn og sveitaferð svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur félagið styrkt leikskólann með kaupum á kennslugögnum og leikföngum.

Það er hagur hvers leikskóla að hafa öflugt og virkt foreldrafélag og eru foreldrar því hvattir til að taka virkan þátt í starfi foreldrafélagsins.

Hafi foreldrar einhverjar ábendingar eða athugasemdir má senda slíkt á netföng stjórnarmeðlima.

Stjórn foreldrafélagsins skólaárið 2024-2025


Elísa Fönn Grétarsdóttir, formaður skoli.leik@gmail.com

Petra Ruth Rúnarsdóttir, ritari petraruth3@gmail.com

Sigrún Harpa Harðardóttir, gjaldkeri sigrunharpah95@gmail.com

Camilla Hjördís Samúelsdóttir camillahjordis@gmail.com

Karolina Kryspowicka Lisinska Kryspowicka.karolina@gmail.com





© 2016 - 2026 Karellen