Í síðustu viku kvöddum við Huldu Sigurþórsdóttur, en hún lætur af störfum við Heilsuleikskólann Suðurvelli. Hún hóf störf við leikskólann árið 2018 og hefur verið frábær samstarfskona og sýnt mikla fagmennsku sem deildarstjóri.
Við viljum þakka henni kærlega fyrir samstarfið og óskum henni velfarnaðar í öllu því sem framtíðin ber í skauti sér.
