Upp er komið flott útieldhús á útisvæðið okkar, sem er athafnasvæði fyrir alla flotta nemendur til að drullumalla, elda, baka eða til að halda fínasta matarboð.
Útieldhúsið er mjög vinsælt og hefur meðal annars verið löguð kakósúpa með grasi, bakað brauð með steinum og kaka með blómum.
Stundum verður boðið upp á vatn sem er mjög vinsælt hjá þeim.
Við erum viss um að nemendur okkar munu njóta vel og lengi.
