Karellen
news

Sveitaferð

16. 05. 2025

Hin árlega sveitaferð foreldrafélags Suðurvalla, var farin miðvikudaginn 14. maí 2025. Farið var á sveitabæinn Miðdal í Kjós. Vel var tekið á móti okkur og aðstaða öll til fyrirmyndar.

Rjómablíða var allan tímann sem við vorum í ferðinni sem gerði daginn eftirminnilegri.

Að lokum voru pylsur grillaðar og nutum við þess að borða þær úti í góða veðrinu.

Þetta var frábær ferð þar sem ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega.

© 2016 - 2026 Karellen