Gleðilegt sumar kæru fjölskyldur og bestu þakkir fyrir gott samstarf í vetur.
Nú þegar sól hækkar á lofti og grundirnar gróa hefst sumarstarfið hjá okkur, þá færum við hópastarfið meira út í góða veðrið.
Við fögnum sumri og vonum að það verði okkur gott.
Sumarkveðja frá starfsfólki Suðurvalla!