Karellen
news

Föstudagsfrétt frá Lyngbjalla

07. 06. 2024

Það hefur verið nóg að gera hjá okkur á Lyngbjalla. Eins og áður hefur komið fram hófst sumarstarf hjá okkur hér í byrjun síðasta mánaðar. Þrátt fyrir það höfum við ekki haft mörg tækifæri til að færa starf í listasmiðju út úr húsi. Hins vegar hafa barna hópar fengið „auka“ vettvangsferðir þar sem ýmislegt skemmtilegt og óvænt komið upp á.Til að mynda fór hópur í göngutúr um Vogagerðið. Eins og margir íbúar bæjarins vita er þar við eitt húsið afar skemmtilegur garður þar sem sjá má ýmiskonar fígúrur og kynjaverur.Þar sem börnin stóðu á gangstéttinni og virtu fyrir sér það sem fyrir augu bar, kom hún Júlía, eigandi garðsins og bauð okkur að koma innfyrir og skoða.Júlía sýndi okkur líka hænurnar sínar. Þá sýndi hún okkur einnig agnar litla hænuunga og við fengum að finna hversu mjúkir þeir væru.

Á miðvikudag var íþróttadagur á leikskólanum, en þá förum við með ýmislegt spennandi dót úr íþróttasalnum og stilltum því upp úti á lóð. Þar fengu svo öll börn leikskólans tækifæri á að spreyta sig við ýmsar þrautir og hreyfileiki.

© 2016 - 2026 Karellen