Til okkar á Suðurvelli kom flottur hópur úr 4. bekk Stóru-Vogaskóla. Þau komu með bækur með sér og lásu glæsilega fyrir leikskólabörnin sem fylgdust spennt með.
Heimsóknin er liður í samstarfi milli skólastiga og þar að auki er 4. bekkur að æfa sig í upplestri fyrir Litlu- upplestrarkeppnina sem haldin verður á vorönn.
Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.
