Höfrungahópur fór í vettvangsferð síðastliðinn mánudag. Hópurinn ákvað í sameiningu að ganga að litla “skóginum” okkar sem er staðsettur milli Dalahverfis og Holtahverfis. Þar eyddum við dágóðum tíma og sáum meðal annars býflugur og köngulær.
Á leiðinni til baka gengum við ofan á stórri mön þar sem börnin tóku upp á því að rúlla sér niður. Þá fóru einhver börn að tína fífla og gefa kennurum ferðarinnar þá. Iwona, sem er nýr starfsmaður á Lyngbjalla nýtti þá tækifærið og sýndi börnunum hvernig hægt væri að búa til blómakrans úr blómunum. Það þótti þeim áhugavert og langaði flestum að prófa að setja kransinn á höfuðið. Þessi skemmtilega vettvangsferð endaði svo á því að börnin léku sér á leikvellinum í Dalahverfinu áður en við gengum aftur að Suðurvöllum.



