Karellen
news

Sumarstarf á lyngbjalla

03. 05. 2024

Nú eru áherslur maímánaðar komnar á vefinn.

Sumarstarf hófst formlega í leikskólanum 2. maí en þá færum við daglegt starf meira útfyrir veggi húsnæðisins.Þannig nýtum við okkur lóð leikskólans og svæði í nágreni hans til að vinna ýmis skemmtileg og spennandi verkefni með börnunum t.d. sem tengjast hópastarfi eins og íþróttum og listsköpun. Þá má einnig hafa með sér sögubók út á lóð eða út í náttúruna og hlusta á sögu.Þetta er þó bara lítið dæmi um hvað við getum gert saman en við kennararnir höfum það að leiðarljósi að horfa til áhuga barnahópsins hverju sinni og því geta verkefnin verið fjölbreytt.

© 2016 - 2024 Karellen