Karellen
news

Föstudagspóstur frá Lyngbjalla

17. 01. 2025

Hér á Lyngbjalla höfum við byrjað nýja árið á rólegu nótunum enda flestir afslappaðir og úthvíldir eftir hátíðarnar. Við höfum farið í listsköpun og unnið þar við ýmis verkefni og farið í íþróttasalinn í skipulagðar íþróttastundir eins og áður. Auk þess unnum við með leir inni á deildinni, sungum og lásum eða hlustuðum á sögur, sögðum frá (framsögn) auk ýmissa annara verkefna.

Þessi vika var þó óvenjuleg að því leiti að leikskólinn var lokaður á þriðjudag vegna skipulagsdags. Auk venjubundinnar skipulagsvinnu og funda vorum við starfsfólkið svo heppin að fá gríðarlega gagnlegt og ýtarlegt skyndihjálparnámskeið þar sem við fengum ýmiskonar fræðslu, bæði í formi fyrirlestrar og verklegra æfinga. Við vonum auðvitað að við þurfum aldrei að nota það sem við lærðum, en eins og við vitum öll, gera slysin ekki boð á undan sér.

Flestir hafa orðið varir við bleytuna og rigninguna sem hefur verið hérna hjá okkur upp á síðkastið. Við viljum endilega biðla til ykkar foreldra og forráðamanna að muna eftir að athuga hvort allur viðeigandi útifatnaður sé í hólfum barnanna. Þá þarf einnig að muna eftir að skoða aukafatakörfuna og passa að allt sé í henni sem þar á að vera og svo auðvitað að muna eftir að taka blautan fatnað með heim ef við á.

Við viljum einnig minna á að í næstu viku, eða nánar tiltekið á miðvikudag er pabba og afa dagur í leikskólanum. Þá er öllum pöbbum og öfum boðið að koma í leikskólann á milli klukkan 14:30 – 16:00 og eiga gæðastund með börnunum.

Við ljúkum þessum stutta pistli með ljósmyndum sem sýna einbeitt börn í listasmiðju og í leik og starfi inni á deild.


© 2016 - 2026 Karellen