Karellen
news

Útskriftarferð

02. 06. 2021

Elstu börnin á Háabjalla gerðu sér dagamun um daginn og fóru í útskriftarferð. Að þessu sinni var ferðinni heitið að Háabjalla sunnan Vogar sem deildin okkar er nefnd eftir. Dagurinn var vel skipulagður og mikið um að vera. Kennarar frá fimleikafélaginu Björk komu og kenndu okkur að klifra í klettunum. Hugrökk börn fóru sum margfalda hæð sína upp eftir klettunum. Við veiddum í Snorrastaðatjörnum, eða reyndum það allavega. Það var lítið að hafa svo við komum með öngulinn í rassinum til baka. Það gerði ekkert til því smá sull er alltaf hressandi. Á sviðinu í skóginum voru settir upp leikþættir og málaðar myndir. Prufað var að nota efnivið úr skóginum til þess að mála með, eins og köngla og greinar. Glorhungruð útbjuggum við svo pizzur sem við grilluðum og nutum úti í guðsgrænni náttúrunni. Eftir matinn hvíldum við okkur svo í tjaldi sem við tókum með okkur og hlustuðum á sögu af þeim bræðrum Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Áður en haldið var heim á leið gróðursettum við í leikskólalundinum birkitré sem skógræktarfélagið Skógfell í Vogu gefur. Það voru glöð börn sem héldu heim á leið í lok dags, ánægð með dagsverkið.


© 2016 - 2026 Karellen