Við tókum upp kartöflur í vikunni.
Í vor settu Háabjallabörnin niður nokkrar kartöflur í beð á leikskólalóðinni. Það var mjög skemmtilegt og vakti athygli. Við gölluðum okkur upp á rigningardegi, fundum kartöflugaffal og fötu og leituðum að grösum þar sem kartöflurnar voru settar niður. Vitið menn – við fundum nokkur grös og stungum þau upp. Það sem var undir vakti mikla kátínu. Börnin voru mjög spennt að sjá og tína kartöflurnar í fötuna. Þær voru bæði hvítar og fjólubláar. Þessar hvítu var auðvelt að finna en hinar voru svo dökkar að þær sáust varla í moldinni. Við notuðum svo næsta poll og skoluðum mestu moldina af. Kartöflurnar fóru svo allar í eldhúsið til Ásu sem sauð þær fyrir okkur svo við gætum smakkað. Flestir smökkuðu og létu vel af bragðinu, sumum fannst reyndar mikil áskorun að smakka þessar fjólubláu.
Við munum svo endurtaka leikinn þegar fer að vora á ný.
