Karellen
news

Síðustu dagar skólaársins

02. 07. 2021

Aðeins öðruvísi dagar þessir síðustu. Flest börnin í gula hóp hafa nú lokið leikskólagöngu sinni og komin í sumarfrí. Í haust tekur svo grunnskóli við hjá þeim. Það var skrýtið að kveðja þau en mikil gleði og tilhlökkun í hópnum að halda út í sumarið. Við þökkum þeim kærlega fyrir samveruna og óskum þeim góðs gengis í framtíðinni.

Síðustur tvær vikurnar höfum við tekið á móti börnum af Lyngbjalla, sem færast yfir á Háabjalla að loknu sumarleyfi. Það hefur heldur betur verið líf og fjör á deildinni í öllum þessum heimsóknum. Það eru auðvitað tímamót þegar maður er orðinn stór og kominn á deild elstu barnanna. Háabjallabörnin hafa tekið vel á móti nýliðunum og sýnt þeim dót og farið í leiki sem við kunnum svo vel. Börnin af Lyngbjalla standa sig vel í aðlöguninni. Þau þekkja auðvitað öll börnin á deildinni okkar og nú hafa þau líka fengið að kynnast kennurunum aðeins betur og deildinni sjálfri. Það verða vel aðlöguð börn sem hitta vini sína á Háabjalla í ágúst, þegar við komum aftur saman.

Við höldum glöð út í sumarið og hlökkum til verkefna sem það býður uppá.

© 2016 - 2026 Karellen