Karellen
news

Ræktun

30. 06. 2021

Við ræktum ýmislegt á Háabjalla. Með ræktuninni fylgjumst við með litlum fræjum breytast og verða að plöntum. Svo smökkum við auðvitað þegar plantan er orðin nógu stór og búin að mynda ávöxt. Í fiskabúrinu inni ræktum við basil og timian og úti fylgjumst við t.d. með kartöflum, jarðarberjum, mintu og baunum vaxa. Það er svo skemmtilegt að setja lítið fræ í mold og horfa á það vaxa. Við gátum fylgst með baunum sem við settum í krukkur úti í glugga, breytast. Eftir þrjá daga kom á þær skrýtið skott sem stækkaði fljótt og fékk grænan lit. Þá tókum við baunirnar og settum í mold. Nokkrum dögum seinna höfðu plönturnar vaxið ótrúlega mikið. Þá hlustuðum við á Jóa og baunagrasið og ímynduðum okkur að okkar baunagrös yrðu stór eins og hjá Jóa. Baunagrösin stækkuðu (ekki eins og hjá Jóa samt) og núna erum við búin að smakka ljúffengar baunir sem vaxa í potti úti.


© 2016 - 2026 Karellen