Karellen
news

París á leikskólalóðina

10. 06. 2021

Það þarf oft ekki mikið til þess að brjóta upp daginn og gera lífið skemmtilegra. Í vikunni komu tveir "vinnumenn" og settu parís á lóðina við leikskólann. Það þurfti háværan blásara og brennandi heitan eld til þess að hægt væri að vinna verkið. Það var spennandi að fylgjast með því. Vinnumennirnir sögðu að venjulega væru þeir ekki með áhorfendur við vinnuna, svo þetta var líka skemmtilegt fyrir þá. Börnin pössuðu svo upp á að enginn stigi fæti á parísinn fyrr en hann væri orðinn kaldur. Og nú leika þau sér við að hoppa og telja um leið, á öðrum fæti eða báðum.

© 2016 - 2026 Karellen