Karellen
news

Nýtt skólaár

20. 08. 2021

Þá eru tvær vikur liðnar af skólaárinu. Þær hafa verið fljótar að líða enda mikið að gera á Háabjalla. Nýliðarnir á deildinni eru duglegir að aðlagast og mikil gleði í leiknum. Skipulagt starf er að mestu hafið og skemmtilegt að brjóta upp daginn og fara í íþróttir, listsköpun og vettvangsferðir. Það er gaman að sjá hvað börnin hafa þroskast mikið í sumar. Þau hafa ekki bara stækkað heldur lært svo margt og hafa frá svo mörgu að segja. Það skín tilhlökkun úr augum barnanna að takast á við ný og spennandi verkefni.

© 2016 - 2026 Karellen