Karellen
news

Hvernig viðrar ?

07. 09. 2021

Um daginn eignaðist leikskólinn stórskemmtilegt púsl (mynd) sem við notum mikið á Háabjalla. Þetta er ekkert venjulegt púsl. Það er risastórt og á því eru margar myndir. Í samverustundum skoðum við púslið og leiðréttum það frá gærdeginum – setjum réttan dag og dagsetningu, breytum um veðurtákn, ákveðum hvernig útiklæðnaður hentar best, skoðum hvort árstíð hefur breyst og athugum hitastigið. Púslmyndin er svo uppi á hillu það sem eftir lifir dags, þar sem allir geta virt hana fyrir sér. Þessi atriði eru öll svo mikilvægur hluti lífsins og tilverunnar – það er gott að byrja sem fyrst að læra um þau.

© 2016 - 2026 Karellen