Karellen
news

Heimsókn til hestanna

28. 06. 2021

Guli hópur fór og heimsótti hesta í Fákadal í Vogum. Við vorum búin að fá leyfi og einn eigandi þeirra var með okkur. Þeir voru úti þegar við komum og voru að bíta gras. Tveir voru sofandi en vöknuðu fljótt þegar þeir urðu varir við okkur. Ása hafði gefið okkur afganga úr eldhúsinu sem við gátum gefið þeim. Þeir voru mjög hrifnir af gulrótunum og hinu grænmetinu og leyfðu okkur að klappa sér aðeins til að þakka fyrir sig.

Við gengum svo eftir reiðveginum fyrir ofan Dalahverfið. Þar sáum við reykinn úr eldgosinu. Flestir þekkja Fagradalsfjall og Keili og geta bent á þessi merkilegu fjöll okkar. Ferðin endaði svo í litla skógi þar sem refir fóru á kreik. Við komum svo í leikskólann, passlega til þess að borða hádegismat, gulrætur og fleira – eins og hestarnir.

© 2016 - 2026 Karellen