Karellen
news

Heimsókn á bókasafnið

05. 11. 2021

Ugluhópur fór í heimsókn á bókasafnið í Stóru-Vogaskóla í vikunni. Það er hefð fyrir þessari heimsókn sem markar nokkurskonar upphaf aðlögunar barnanna við grunnskólann. Heimsóknin á bókasafnið var frábær. Þar er unnið með þema um þessar mundir – draugaþema. Svava sem stjórnar bókasafninu tók á móti okkur og sýndi okkur ýmislegt spennandi. Allir fengu vasaljós og gengu um á milli bókahillanna í myrkri með vasaljósið að vopni. Svava las eina bók fyrir hópinn og ræddi efni bókarinnar. Það var ánægður hópur sem hélt heim á leið eftir þessa skemmtilegu heimsókn. Börn hafa gaman af bókum og sýna þeim mikinn áhuga. Bókasafnið okkar hér í bæ er opið almenningi og tilvalið að heimsækja það með börnunum og fá lánaðar nokkrar bækur til þess að skoða saman.

© 2016 - 2026 Karellen