Fjöruferðir eru ótrúlega lærdómsríkar – krefjandi og forvitnilegar. Við í Vogum erum svo heppin að hafa skemmtilegar fjörur nálægt okkur. Þar er hægt að gramsa í alls konar dóti, lífverum og plöntum. Í fjörunum er sandur og grjót og stundum mikill þari með skrýtinni lykt. Til þess að komast í fjöruna þarf stundum að klöngrast yfir grjótgarð eða klofa hátt gras. Allt er þetta mikilvægt í að efla hreyfiþroska og skynjun. Í fjöruferðum kynnumst við mismunandi undirlagi, allt frá malbikuðum stígum til sjávargrjóts sem erfitt er að fóta sig í. Öll skynfæri eru virkjuð. Svo er þetta svo ótrúlega gaman og alltaf eitthvað nýtt að sjá.
