Það var mikið fjör á íþróttadegi Suðurvalla þetta haustið. Byrjað var á þrautakóngi þar sem gengið, hlaupið og hoppað var um alla skólalóðina. Sumum fannst erfitt að þurfa að vera í röð og gera alveg eins og hinir en það stóðu sig allir mjög vel. Það má læra heilmikið í þessum skemmtilega leik. Við húlluðum líka, lékum okkur með bolta og földum okkur undir fallhlífinni. Það var rigning eins og síðast þegar við héldum íþróttadag og ekki hægt að nota mikið af áhöldunum sem við eigum inni. það kom þó ekki að sök, það voru allir svo ákveðnir í að hreyfa sig og hafa gaman. Nú getum við farið að láta okkur hlakka til næsta íþróttadags.
