Þann 16. september, á fæðingardegi Ómars Ragnarssonar er haldið upp á dag íslenskrar náttúru. Við á Háabjalla héldum að sjálfsögðu upp á daginn, enda miklir náttúruunnendur.
Í tilefni dagsins fór öll deildin í vettvangsferð suðurfyrir Vogana þar sem við skoðuðum nokkra hóla og nutum náttúrunnar. Það er magnað hvað það eru margir hólar nálægt bænum okkar, sem gaman er að klífa og njóta. Í þetta sinn var fyrsti viðkomustaður Steinsholt sem er nálægt Fákadal, hesthúsunum. Við lékum okkur aðeins þar og spáðum í hvort það væru draugar í hólnum. Þaðan örkuðum við að Guðnýjarhól á Flötunum. Hann er passlega hár fyrir alla að klífa. Með sprungu í gegnum sig miðjan og þúfu á toppnum. Á Guðnýjarhól borðuðum við nestið okkar og sumir tíndu ber. Frá hólnum sáum við til Víkurhóla sem eru nálægt Stapaveginum og Hulduhóls sem er aðeins sunnar. Við sáum líka vel til Fagradalsfjalls og reyksins sem kemur frá eldgosinu í Geldingadölum. Keili sáum við líka vel. Við gengum svo sem leið lá frá Guðnýjarhóli og í átt til sjávar. Við enduðum ferðina auðvitað í fjörunni, hvar annarsstaðar. Til þess að komast þangað þurfti að ganga í mjúkum mosa, klofa hátt gras og renna sér niður grasivaxin börð. Í fjöruna komumst við. Þar skoðuðum við fugla í gegnum sjónauka og grömsuðum í allavega spennandi hlutum. Hápunkturinn var að finna tvo flatfiska, líklega kola. Þeir fengu ekki að koma með okkur heim enda dauðir og farnir að lykta.
Við erum svo heppin að hafa fjöruna, móann og heiðina allt um kring hjá okkur. Það eru endalausar uppsprettur af náttúruupplifun umhverfis. Við nýtum náttúruna svo sannarlega í starfinu okkar á deildinni og börnunum finnst hvergi skemmtilegra en þar sem þau eru frjáls úti í náttúrunni. Hjá okkur eru allir dagar náttúrudagar.
.jpg)

