Við á Háabjalla héldum að sjálfsögðu upp á alþjóðlega bangsadaginn í gær. Flestir komu með bangsa að heiman, léku sér með hann, lánuðu og fengu lánaða bangsa hjá öðrum. Nokkrir Bangsar komu með á kóræfingu og hlustuðu á kórinn syngja. Það þótti þeim gaman enda duglegir krakkar í kórnum. Bangsarnir tóku líka þátt í samverustund. Lærðu um orð sem innihalda hljóðið Vv og fylgdust áhugasamir með þegar börnin ræddu um veðrir og hvernig best væri að klæða sig fyrir útivistina. Allir fóru svo með í hvíld og aðstoðuðu eigendurna við að slaka á og hvíla sig. Við erum viss um að bangsarnir hafa lært margt og mikið af þessum degi á Háabjalla.


