Karellen
news

Papríkuplönturnar vaxa og dafna

15. 05. 2025

Papríkufræin sem börnin settu niður um miðjan febrúar hafa aldeilis vaxið og eru orðnar stórar og stæðilegar plöntur. Börnin fengu að setja fræin sjálf í pottinn sinn og fóru fleiri en eitt fræ í hvern pott. Nú er svo komið að það virðist hafa vaxið planta úr öllum fræunum og er orðið ansi þröngt um allar þessar plöntur í þessum litlu pottum.Það lítur út fyrir það að það þurfi að skipta plöntunum þannig að hver planta fengi sinn pott.

© 2016 - 2026 Karellen