Karellen
news

Vinnukvöld

12. 06. 2018

Fimmtudaginn 14. júní næstkomandi ætlum við að bjóða fjölskyldum barnanna á vinnukvöld hér í leikskólanum.

Ætlunin er að fegra umhverfi leikskólans. Ýmis verkefni þarf að vinna s.s að snyrta beð og setja niður sumarblóm, sópa, setja niður tré í nýja beðið okkar meðfram girðingunni, raka yfir grasið, laga til í matjurtagarðinum og fleira.

Vinnukvöldið verður frá kl. 17:00-19:00 og að vinnu lokinni ætlum við að bjóða upp á kjúklingasúpu og brauð. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og leggja okkur lið við að snyrta og prýða umhverfi leikskólans okkar.

Til að geta áætlað magn af mat væri gott að foreldrar tilkynni um þáttöku með því að senda tölvupóst á leikskoli@vogar.is

© 2016 - 2024 Karellen