Karellen
news

Umferðarþema

17. 05. 2021

Í þessari viku er umferðarþema hjá okkur.

Í vettvangsferðum verðum við með áherslu á umferðarreglur og umferðaröryggi. Hópar skoða og lesa bækur um umferðina og vinna verkefni tengd því.

Fimmtudaginn 20. maí er hjóladagur í leikskólanum. Þá mega öll börn á Háabjalla koma með hjólin sín með sér í leikskólann og að sjálfsögðu á hjálmurinn að fylgja með. Áætlað er að lögreglan komi í heimsókn og skoði hjól og hjálma barnanna.

Við munum loka bílastæðinu fyrir umferð frá kl. 10:00 - 11:30.

© 2016 - 2024 Karellen