Karellen
news

Þorrablót

15. 01. 2018

Okkar árlega þorrablót verður föstudaginn 26. janúar. Eins og áður bjóðum við eldri borgurum í Vogum í heimsókn til okkar kl. 9:30 -11:00. Kór leikskólans mun flytja nokkur lög fyrir gestina og að sjálfsögðu fá svo allir að smakka á hefðbundnum þorramat. Við hvetjum börn og starfsfólk til að mæta í leikskólann í lopaflík þennan dag, t.d. ullarsokkum eða peysu, allt eftir því hvað hver og einn á til að klæðast.

© 2016 - 2024 Karellen