Miðvikudaginn 20. júní er sumarhátíð leikskólans. Börn og kennarar fara að huga að undirbúningi fyrir daginn en ætlunin er að skreyta lóð leikskólans.
Í tilefni dagsins verða ýmsar skemmtilegar uppákomur.
Fyrri hluta dags ætlum við að leika okkur saman og hafa gaman. Boðið verður upp á andlitsmálningu og íþróttaáhöld verða á útisvæði.
Í hádeginu verður boðið upp á pizzu og eftir hádegi fáum við Vísinda-Villa í heimsókn, áætlað er að hann mæti á svæðið kl. 13:30. Þessi skemmtun er í boði foreldrafélagsins.
Klukkan 13:00 eru foreldrar og systkini hjartanlega velkomin.
Vonandi sjáum við sem flesta og eigum skemmtilegan dag saman. Við treystum að sjálfsögðu á gott veður !
Kær kveðja frá öllum á Suðurvöllum.