Karellen
news

Nýtt merki skólans

06. 12. 2019

Leikskólinn okkar er kominn með merki. Þetta hefur lengi verið draumur okkar og var gerð áætlun um að vinna að merki fyrir Heilsuleikskólann Suðurvelli í vetur. Það var svo í haust að nokkur börn á Háabjalla unnu svo fallegt myndverk sem sýnir börn leiðast í hring í kringum gula sól. Þetta varð kveikjan að þessu fallega merki sem Sigrún deildarstjóri á Háabjalla setti upp og vann í tölvu. Ákveðið var að gildin okkar, virðing, umhyggja, samvinna og gleði hringist utan um börnin á myndinni. Við erum mjög ánægð með hvernig til hefur tekist. Þegar merkið var komið breyttum við viðmóti heimasíðunnar leikskólans og settum merkið þar við hliðina á myndinni af skólanum. Við vonum að notendur síðunnar verði jafn hrifnir af breytingunni og við erum.

© 2016 - 2024 Karellen