Karellen
news

Leikskólakennarar óskast til starfa

13. 10. 2017

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa sem fyrst. Um er að ræða tvær stöður, ein 100% og önnur 50%. Ef leikskólakennarar fást ekki til starfa verða aðrar umsóknir teknar til skoðunar.

Suðurvellir er þriggja deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar. Virðing og umhyggja eru leiðandi hugtök í leikskólanum og áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Umsóknum skal skila á netfangið leikskoli@vogar.is eða sækja um á heimasíðu leikskólans http://sudurvellir.leikskolinn.is fyrir 24. október n.k.

Nánari upplýsingar veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri

og Oddný Baldvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is

Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.

© 2016 - 2024 Karellen