Karellen
news

Laus staða leikskólakennara

07. 11. 2018

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara í 75% starf sem fyrst. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa þá koma aðrir umsækjendur til greina.

Sækja skal um á heimasíðu leikskólans http://sudurvellir.leikskolinn.is fyrir 17. nóvember n.k.

Nánari upplýsingar um starfið veita: María Hermannsdóttir leikskólastjóri eða Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 440-6240.

Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á leikskoli@vogar.is

Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um.

© 2016 - 2024 Karellen