Í hlutverkaleik æfa börnin sig í samskiptum hvert við annað. Þá æfist og eflist málþroski, tilfinningaþroski og lýðræðishugsun. Hér í leikskólanum leggjum við áherslu á að börnin hafi fjölbreyttan efnivið til hlutverkaleikja og að hann hafi góðan tíma í skipulagi deildanna.