Karellen
news

Gleðilegt sumar

23. 04. 2021

Gleðilegt sumar kæru fjölskyldur og bestu þakkir fyrir gott samstarf í vetur.

Nú þegar sól hækkar á lofti og grundirnar gróa hefst sumarstarfið hjá okkur. Þá færum við hópastarfið meira út í góða veðrið og eins og í vetur þá fara allir hópar einu sinni í viku í vettvangsferð, listsköpun og íþróttir. Elstu börnin fara auk þess vikulega í íþróttahúsið og svo verður einnig í maí og júní.

Við fögnum sumri og vonum að það verði okkur gott.

Sumarkveðja frá starfsfólki Suðurvalla!

© 2016 - 2024 Karellen