Það er árviss viðburður hjá okkur hér á Suðurvöllum að bjóða elstu börnum leikskólans í jólaferð í Sívertsen-hús. Það er hluti af byggðarsafni Hafnarfjarðar og þar sjá börnin hvernig haldið var upp á jólin í gamla daga. Ferðin í gær var vel heppnuð og hópurinn fór í gönguferð um Strandgötuna og Jólaþorpið og endaði svo á því að gæða sér á piparkökum og heitu súkkulaði á Pallet kaffi. Það var glaður hópur sem kom heim í Vogana eftir skemmtilega ferð .