Karellen
news

Dagur leikskólans

03. 02. 2020

Þann 6. febrúar er Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í 13 sinn. Þennan dag árið 1950 stofnuðu íslenskir leikskólakennarar fyrstu samtök sín. Við höldum því upp á daginn og vekjum athygli á mikilvægu hlutverki leikskóla og leikskólakennara í íslensku samfélagi. Hér á Suðurvöllum höfum við verið að vinna með ljósmyndun og myndlist með börnunum . Á næstu dögum munum við hengja verk þeirra upp í gluggum leikskólans. Við hvetjum alla þá sem eiga leið framhjá leikskólanum til að staldra við og skoða þessi skemmtilegu verk barnanna.

© 2016 - 2024 Karellen