Karellen

Starfsreglur foreldraráðs

  1. Foreldraráð starfar eitt skólaár í senn þ.e. frá 1. október til og með 30. september ár hvert. Í foreldraráði skulu sitja að lágmarki þrír foreldrar. Formaður foreldraráðs boðar til fundar. Fundir skulu haldnir í september, nóvember, febrúar og júní. Auk þess ef einn fulltrúi óskar eftir fundi skal boðað til hans innan viku. Einnig getur leikskólastjóri kallað eftir fundi ef þurfa þykir.
  2. Fulltrúar í ráðinu og starfsreglur þess skulu kynnt á heimasíðu leikskólans. Leikskólastjóri skal upplýsa ráðið um hver þau mál sem snert geta starfsemi skólans. Ráðið skal halda fundargerðabók og sjá til þess að fundargerðir séu aðgengilegar á heimasíðu leikskólans.
  3. Leitast skal við að í ráðinu séu foreldrar barna á mismunandi aldursstigum.
  4. Á aðalfundi foreldrafélagsins sem haldinn er í upphafi hvers skólaárs óskar starfandi foreldraráð eftir nýjum framboðum. Séu fleiri en þrír sem bjóða sig fram skal kosið um fulltrúa í ráðið. Einn fulltrúi skal halda áfram næsta ár á eftir til að tryggja samfellu í starfi ráðsins.
  5. Foreldraráð starfar með leikskólastjóra og skal vera tengiliður við aðra foreldra. Foreldraráð skal beita sér fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum í samskiptum við foreldra, leikskólastjóra og bæjaryfirvöld.
  6. Helstu verkefni: Ráðið skal vera umsagnaraðili um skólanámskrá, skóladagatal og áætlun vetrarins. Bera skal skóladagatal saman við skóladagatöl grunnskólans m.t.t. skörunar við starfsdaga og aðra frídaga. Ráðið skal einnig koma ábendingum frá foreldrum sem það hefur fengið áleiðis til leikskólastjóra, fjalla skal um sumarlokanir leikskólans og aðrar stórar ákvarðanir sem hafa áhrif á starf skólans.
  7. Komi upp tilvik sem foreldraráð telur að þarfnist umræðu í öllum foreldrahópnum skal ráðið boða til fundar með foreldrum þar sem málin skulu rædd og lýðræðislegar ákvarðanir teknar. Foreldraráð fylgir þeim ákvörðunum eftir.
  8. Foreldraráð fjallar ekki um málefni einstakra barna eða starfmanna.
  9. Starfsreglur þessar skulu endurskoðaðar í lok hvers skólaárs. Til stuðnings sem og nánari útfærslu starfsreglna þessara er vísað í 11. grein laga um leikskóla: http://www.althingi.is/lagas/135b/2008090.html
© 2016 - 2024 Karellen