Karellen
news

Páskakveðja

17. 04. 2019


Við á Háabjalla höfum haft mikið að gera undanfarnar tvær vikur eða svo en börnin ákváðu að það væri nauðsynlegt að föndra fyrir Páskana. Allir hópar hafa veri duglegir að teikna og lita í frjálsum stundum sem og hópastarfinu í listasmiðju. Sumir hafa farið með eitthvað af sínum verkum heim til að skreyta heima og aðrir hafa óskað eftir því að hengja sitt upp á vegg á leikskólanum.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska og látum fylgja með nokkrar myndir af hluta listaverkanna.

© 2016 - 2024 Karellen