Karellen
news

Janúar og febrúar

15. 02. 2019

22. janúar komu pabbar og afar í heimsókn á Suðurvelli og var vel mætt. Eftir bakkelsi og kaffi fóru margir inn á deild í leik.Vel heppnaður dagur og allir ánægðir eftir góðan dag.

Þorrablót 30. janúar. Börnunum var boðið upp á grjónagraut og þorramat í hádegismat. Þau voru dugleg að smakka þó að ekki hafi öllum líkað bragðið af öllu :)

Mömmu- og ömmudagur var haldinn 13. febrúar og var mætingin alveg hreint frábær. Börnin buðu upp á heimabakað brauð og voru þau öll spennt að sýna þeim leikskólann og leika sér saman.

© 2016 - 2024 Karellen