Haustið byrjar vel hjá okkur á Lágabjalla sem og aðlögun nýrra barna. Góða veðrið hefur verið nýtt mikið í útiveru í byrjun hluta september en við finnum að veturinn minnir á sig í auknu mæli og því gott að huga vel að því að hafa hlý föt í hólfinu.
Hópastarfið er komið á fullt og höfum við meðal annars farið í hreyfingu í íþróttasalinn, sullað, farið í könnunarleik og leikið á hljóðfæri.
Við hlökkum til að eiga skemmtilegar stundir með ykkur í vetur :)
Heiða, Elwira, Helga, Fanney og Pálina